Vefhönnun og stafrænar veflausnir

Við erum tveir reyndir forritarar sem hönnum og smíðum vefinn þinn sjálf – frá einfaldri kynningarsíðu til netverslana og sérsmíðaðra vefkerfa. Engir milliliðir, bara bein samskipti við þau sem vinna verkið.

Sérsniðnar og skalanlegar veflausnir

Hjá Norduo sérhæfum við okkur í að þróa sérsniðnar og skalanlegar veflausnir – allt frá einföldum vefsíðum til stærri og flóknari verkefna. Við tökum hugmyndir þínar og gerum þær að veruleika með tæknilegri kunnáttu, skapandi hönnun og áreiðanlegri framkvæmd.

  • Vefsíður og netverslanir

    Hraðar og notendavænar vefsíður og netverslanir sem auðvelt er að uppfæra. Við setjum upp skýrt efnisskipulag svo starfsfólkið þitt geti breytt texta, myndum og vörum án tæknilegrar aðstoðar.

  • Sérsmíðuð vefkerfi

    Þegar tilbúnar lausnir duga ekki smíðum við frá grunni – pöntunar- og greiðslukerfi, lokuð notendasvæði, stjórnborð og tengingar við kerfin sem þú notar nú þegar.

  • SEO og Google Ads

    Við byggjum vefinn með leitarvélabestun frá fyrsta degi, setjum upp Google Analytics og keyrum Google Ads herferðir svo réttu viðskiptavinirnir finni þig.

  • Hýsing og viðhald

    Örugg hýsing og stöðugar uppfærslur, með þjónustusamningi eða í tímavinnu eftir þörfum. Vefurinn helst hraður og öruggur löngu eftir að hann fer í loftið.

Tveir forritarar. Enginn milliliður.

Venjuleg vefstofa

  1. Þú
  2. Sölumaður
  3. Verkefnastjóri
  4. Hönnuður
  5. Forritari

Norduo

  1. Þú
  2. Eyþór og Herdís

Við erum tvö, með yfir 15 ára sameiginlega reynslu í forritun. Þú talar beint við þau sem vinna verkið, án milliliða.

Við leggjum áherslu á gæði, hönnun og virkni í öllum verkefnum, frá fyrsta fundi til lokaafurðar.

Fáðu tilboð
  • Eyþór Konráðsson

    Stofnandi og framkvæmdastjóri

  • Herdís Helga Helgadóttir

    Stofnandi og tæknistjóri

Verkefni

  • Skólamyndir

    Sérsmíðað pöntunarkerfi þar sem foreldrar skoða skólamyndir barnanna og panta þær á netinu.

    Sjá nánar: Skólamyndir
  • H. Hauksson

    Nýr vefur sem einfaldaði upplifun viðskiptavina og styrkti ímynd fyrirtækisins.

    Sjá nánar: H. Hauksson

Algengar spurningar

Ertu með verkefni í huga?

Sendu okkur línu og við svörum fljótt með hugmynd og verðtilboði.

Eða sendu okkur póst á contact@norduo.com